Traust, heiðarleg, hlýleg, heimilisleg, jákvæð, ódýr og góð þjónusta á Sjónarhól
Ég er mjög ánægð með mín viðskipti við Sjónarhól, þar sem fyrirmyndarþjónusta og lágt vöruverð fara saman, enda mæli ég hiklaust með fyrirtækinu þegar ég er spurð álits.
Guðbjörg Gunnarsdóttir,
Akranesi.
Ég hef átt viðskipti við Gleraugnaverslunina Sjónarhól í nokkur ár öll þau viðskifti hafa verið afar ánæjuleg allt sem lofað er hefur staðist og öll þjónusta verið með ágætum. Að mínu mati er verslunin með gæðavörur á mjög hagstæðu verði, ég mun því áfram sækja gleraugnaþjónustu til þeirra.
Ágúst Magnússon
Heiðarleiki:
Í viðskiptum mínum við fyrirtækið urðu starfsmanni á mistök við útreikning á nýjum gleraugum fyrir mig. Ég hafði samþykkt uppsett verð og borgað inná til staðfestingar. Um kvöldið beið mín póstur frá fyrirtækinu, þar sem þeir játuðu að hafa gert mistök í verðlagningu gleraugnanna og lækkuðu gleraugun um 6000 kr. Mér fannst þetta heiðarleg framkoma af hálfu Sjónarhóls, þar sem ég hafði samþykkt ásett verð.
Guðrún Þorsteinsdóttir
Þjónustan, heiðarleiki, verð, gæði vörunnar er lýsingin á Gv. Sjónarhól.
Svo tala ég ekki um mjög góða persónulegaþjónustu og hlýleg viðmót.
Fer aldrei annað.
Kveðja Helga Guðlaugsdóttir
Við hjónin erum mjög ánægð með þjónustuna sem við höfum fengið hjá Gleraugnaverslun Sjónarhóls.
Jóhannes og Fríða
Sjónarhóll býður upp á persónulega og hlýlega þjónustu.
Sanngjarnt verð, miðað við gæði og fallegt úrval. Hrósa ber eftirfylgni í meðferð gleraugnanna, sem keypt eru hjá þeim.
Takk fyrir mig, Þóra
Mér er ánægja að votta það að ég fékk fyrirmyndarþjónustu í gleraugnaversluninni Sjónarhóli í haust. Þarna starfar fólk með eftirtektina í lagi; hefur að eigin frumkvæði samband við augnlækninn ef því finnst eitthvað ekki ganga upp. Auk þess var það hjálplegt og elskulegt í viðmóti. Eftir að ég fékk gleraugun mín hef ég fengið upplýsandi tölvupósta frá versluninni, bæði um umhirðu gleraugna og ábendingar um stéttarfélagsstyrki til gleraugnakaupa. Það er engin spurning að þarna mun ég versla næst þegar mig vanhagar um eitthvað tengt sjónglerjum.
Með bestu kveðju,
Bjarni Frímann Karlsson
Eftir ýtarlega leit, vil ég þakka ykkur, hjá Gleraugnaversluninni Sjónarhóli, fyrir góða ráðgjöf og þjónustu við kaup mín á gleraugum. Ég var nú ekki betur að mér en svo og taldi reyndar, að einuingis þyrfti að fara inn í svona verslun og panta eitt stykki gleraugu s.k.v. resefti, en það var nú annað þegar á hólminn var komið. Eftir samskiptin við ykkur, tel ég mig vita heilmikið um þetta stoðtæki og met það þess meira á eftir.
Ekki vil ég lasta aðra, en þakka ykkur sérstaklega fyrir þægilegheitin og þjónustulundina.
Elías Einarsson
Ég hefi tvisvar keypt gleraugu hjá Sjónarhóli.
Þjónustan hefur verið mjög góð. Mér hafa líkað viðskiptin svo vel, að ég ætla að halda þeim áfram, þegar ég þarf. Mér finnst einnig gott að heyra frá ykkur annað slagið.
Ég hefi ekki borið saman verð og gæði við aðra, en hefi á tilfinningunni að mjög vel sé séð um viðskiptavinina hvað það snertir.
Með bestu kveðjum,
Guttormur V Þormar
Ég hef notað gleraugu í mörg ár, og nú í ár þegar ég þurfti að fá mér ný gleraugu ákvað ég að versla við Sjónarhól.
Það er skemmst frá því að segja, að þjónustan var alveg einstök, úrvalið á umgjörðum var mjög gott svo ekki sé meira sagt og ekki skemmdi verðið fyrir, það var með því betra sem ég hafði séð, svo gott að ég fékk mér tvenn !! En ekki var allt búið ennþá, ég bjó mig undir að bíða í þrjár til fjórar vikur eftir nýju gleraugunum eins og venjulega, þar sem ég nota tvískipt, það tekur oft lengri tíma að fá þau.
Ég beið í 12 daga !!
Takk kærlega fyrir mig, þið eruð frábær!
Kveðja,
Steinunn Steinþórsdóttir
Byrjaðu nú að safna í sjóð,
Svo að þér gagnist lífsins skóli,
Þá ódýr færðu og gæðin góð
Í gleraugum frá Sjónarhóli.
Björgúlfur Þorvarðsson
Eldri vitnisburðir hér fyrir neðan
Renndu músinni yfir nöfn viðskiptavina til að lesa!
Hvað segja viðskiptavinir um Sjónarhól?
-
Við bjóðum þér gleraugu á lægra verði
en almennt gerist á Íslandi.
Guðbjörg Fanndal hefur þetta um málið að segja!
-
Við bjóðum þér persónulega og góða þjónustu.
Reynir hefur þetta um það að segja!
-
-
-
Við sjáum til þess að gleraugun þín
séu í góðu standi.
Sjá ummæli
Hildar Kristínar!
-
Við tökum á móti gömlum gleraugum eftir notkun
og komum þeim
áleiðis til Afríku.
Þú getur látið gott af þér leiða!
Sjónarhóll, Reykjavíkurvegi 22, 220 Hafnarfirði, S. 565-5970, Fax 565-5971
sjonarholl@sjonarholl.is Opið alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00
Ég er mjög ánægður með þjónustu Sjónarhóls bæði hvað varðar gæði og hve stuttan tíma tók að fá gleraugun, aðeins einn dag. Með þökk fyrir mig,
kv. Davíð Geir
Ég var mjög ánægð með þjónustuna sem ég fékk á Sjónarhóli. Hlýlegur andi og faglegt viðmót var ríkjandi. Eitthvað sem er víða ábótavant. Kærar þakkir fyrir mig.
Elísabet Lorange
Ég er mjög ánægð með þjónustuna hjá Sjónarhóli. Kveðja Erla Theódórsdóttir
Eftir langa leit okkar mæðgna að gleraugum lá leið okkur í Gleraugnaverslunina Sjónarhól í Hafnarfirði. Þar fundum við það sem að við leituðum að ásamt því að fá framúrskarandi og fljóta þjónustu. Sjónarhóll er verslun sem við erum stoltar að eiga viðskipti við,
Eyrún Ásta og Rannveig
Ég ákvað að fara í Sjónarhóll að fá mér gleraugu, ég hafði heyrt að það væri mikið úrval og frábært verð. Síðan fékk ég sent sms í símann minn þegar þau voru tilbúin, ég ætlaði ekki að trúa því, aðeins 3 tímum seinna. Topp gleraugu, frábært verð, frábær þjónusta
Guðbjörg Fanndal
Ég hef þrívegis keypt gleraugu hjá Sjónarhóli og aldrei orðið fyrir vonbrigðum. Þjónustan er hröð og gæðin langt umfram verðið.
Hákon R. Jónsson
Ég fékk nýju gleraugun mín í nóvember 2006. Þjónustan var öll til fyrirmyndar.
Hálfu ári síðar fékk ég svo boð um að koma með gleraugun og fá djúphreinsun og uppherslu mér að kostnaðarlausu. Þetta kallar maður góða þjónustu. Allir starfsmenn eru brosandi og vita hvað þeir eru að gera. Takk fyrir mig.
Ánægður viðskiptavinur.
Hildur Kristín
Ég vil þakka fyrir allar upplýsingarnar frá ykkur, t.d. hafði ég ekki hugmund um hvernig bezt væri að hreinsa gleraugu, þetta las ég í tölvupósti frá ykkur og sé betur síðan.
Allar upplýsingar er af því góða. Ég er mjög ánæð með ykkur og kem til með að verzla við Sjónarhóll í framtíðinni, þó svo að ég fari yfir Kópavogslækinn.
Með beztu kveðju Ingibjörg Helga Hraundal.
Kynni mín af viðskiptum í Sjónarhóli eru persónuleg þjónusta, brosandi lipurð og umfram allt ódýrustu og þægilegustu gleraugun.
Kveðja Jóhanna H. Óskarsdóttir
Ég hef verslað við Gleraugnaverslunina Sjónarhól og fengið frábærar móttökur og þjónustu.
Bestu kveðjur, Margrét Njálsdóttir
Frábær vara, hagur viðskiptavina í fyrirrúmmi,lágt verð og stendur allt heima sem sagt er. Takk fyrir.
Ólafía Árnadóttir
Við undirrituð hjón höfum fengið afburða góða þjónustu og lipurð og efndir hvað tíma snertir hjá Gleraugnaverslunni Sjónarhól.
Pétur G og Gréta M.
Ég hef verlsað við Sjónarhól í mörg ár og alltaf jafn ánægð með þjónustuna.
Verð, afgreiðsla, viðmót og þjónusta er í alla staði frábær og gaman að gera viðskipti við Sjónarhól.
Takk fyrir mig! Rut Gunnarsdóttir.
Ég var ánægð með þjónustuna sem ég fékk þegar ég keypti mér gleraugu fyrr á þessu ári. Vandamál kom upp varðandi tegund sjónglerja en starfsfólk var allt af vilja gert til að leysa það sem fyrst.
Kveðja,
Sigrún Helga
Ég hefi átt viðskipti við gleraugnaverslunina Sjónarhól í nokkuð mörg ár og þar sem ég hef ekki enn lært að umgangast gleraugu á réttan hátt, né heldur muna hvar ég læt þau frá mér, þá hef ég þurft að kaupa nokkur gleraugu á þessum arum og fara með í viðgerð í ófa skipti. Þjónusta sú sem ég hef fengið hjá Sjónarhóli hefur alltaf verið til mikillar fyrirmyndar. Viðgerðir og afgreiðsla gleraugna hafa gengið hratt og vel fyrir sig og miðað við samanburð sem ég hef gert á verðum annarra þá tel ég að ég sé að kaupa gleraugu á tiltölulega hagstæðu verði.
Svavar.
Eftir að ég fékk ábendingu frá vinnufélaga mínum um frábæra þjónustu hjá Gleraugnaversluninni Sjónarhóll, ákvað ég að láta á það reyna , ábendingin var góð og gulls ígildi.
Tómas Hilmarsson
Í vetur fór ég víða og spurðist fyrir um gler, verð og afgreiðslutíma, og var ekki sáttur. Ég þekkti lítilsháttar til verslunarinnar " Sjónarhóls" í Hafnarfirði, en þar hafði ég mætt sérstakri lipurð og góðu viðmóti.! Verðið á glerjum og nýjum spöngum á Sjónarhól, var 1/3 ef ekki 1/2 verð af því sem mér bauðst hjá öðrum. Ég skrapp því þangað og þarna í þessari góðu búð fékk ég samdægurs afgreiddar nýjar spangir og glerin ísett, og þjónustan bara sú besta sem hægt er að hugsa sér, hvorki meira né minna.
Þetta er reynsla mín af þessari þægilegu litlu gleraugnabúð í Hafnarfirði, engin vandræði með bílastæði og spangarúrvalið, bara hvað viltu ? Og þú færð það sem þig vantar á augnabliki, enda úrval ótrúlega mikið og gott. Vil ég með þessu þakka Ólafi og konu hans , fyrir mig.
Unnar Ágústsson
Frábær þjónusta.
Ágætu eigendur, mig langar að þakka sérstaklega góða og persónulega þjónustu, hún er í alla staði ykkur til fyrirmyndar og frábært hvað þið fylgist vel með öllum nýjungum og eruð snögg að bjóða þær fram í verslun ykkar. Ég hef lent í óhappi með gleraugun mín og þurft að láta laga þau og það stóð ekki á því, ekki náðist að klára það fyrir lokun þess dags sem ég kom og þá var bara unnið lengur og þau kláruð og keyrð svo heim á hlað til mín. Maður á bara slíkri þjónustu ekki að venjast. ÞIÐ ERUÐ FRÁBÆR.
Kveðja Þórdís Elva
Ég er mjög ánægður, þetta er fín verslun, þjónustan er góð og starfsfólkið er almennilegt. Topp einkunn.
K.v Einar
Ég Gunnþór var að fá mér fyrstu gleraugun mín og tók þá ákvörðun að skoða hjá Gleraugnaverslun á Sjónahóll og fékk mjög góða þjónustu á öllu sem við kemur því fagi sé ekki eftir því mun kíkja aftur.
Gunnþór G. Þórðarson.
Ég fékk mjög góða og fljóta þjónustu hjá starfsfólki Sjónarhóls, þegar ég keypti gleraugu hjá þeim.
Það eru í boði mörg merki og breið lína í umgjörðum. Ég á eftir að leita til þeirra aftur þegar kemur að því að skipta út fyrir ný. Það var allt til fyrirmynda hjá þeim.
Hansína
Það er mér sönn ánægja að gefa smá umsögn um okkar viðskipti. Á þessu ári þurfti ég að fara að nota gleraugu við akstur bifreiðar. Ég leitaði til Sjónarhóls v/ kaupa á gleraugum. Það er skemmst frá því að segja, að betri þjónustu hefði ég ekki getað óskað mér. Og ekki skemmdi það fyrir að verðið var lægra en ég átti von á. Með bestu kveðju.
Sverrir V. Guðmundsson
Ég undirritaður keypti gleraugu hjá Sjónarhóli í sumar og var mjög ánægður með þjónustuna, einnig er ég mjög ánægður með þær leiðbeiningar sem ég hef fengið sendar á tölvupósti um umhirðu þeirra.
Kveðja Vilhjálmur Björnsson
Ég keypti tvískipt gleraugu hjá ykkur í apríl og í stuttu máli sagt eru þau frábær. Þetta eru fjórðu tvískiptu gleraugun sem ég fæ mér og þau fyrstu sem ég get virkilega notað. Ég get gengið með þau, keyrt með þau, unnið á tölvu, séð merkingar í búðunum (án þess að þurfa að sækja gleraugu í vasann) og ef ég þarf að líta til hliðar þarf ég ekki að snúa höfðinu heldur bara renna augunum til þannig að þetta er allt annað líf. Bestu kveðjur og takk,
Erla Guðbjörnsdóttir
Góð gleraugu, góð þjónusta og vinaleg verzlun.
kveðja Ingvar Guðmundsson.
Ég tel þjónustu ykkar að Sjónarhóli með mestu ágætum, bæði fagleg og þægileg. Glegaugun hafa reynst mér vel. Ég er mjög svo ánægður með þau og þá “nýju” sýn á umhverfið sem þau veita mér.
Stefán Brynjólfsson.
Ég varð fyrir þeirri slæmu reynslu að tapa glerugunum mínum en án þeirra get ég ekki verið. Ég bý úti á landi og það var miður föstudagu. Ég hringdi í Sjónarhól og bjóst svo sem ekki við því að neitt yrði hægt að gera, en jú, eigandin var til í að bíða efti mér ef ég kæmi í bæinn, og redda gleraugum. Þetta reddaði mér algjörlega. Þarna fékk ég alveg frábæra þjónustu í alla staði, og kem til með að versla mín gleraugu framvegis hjá þeim, þarna er mjög persónuleg þjónusta og það kann ég að meta. Með kæru þakklæti fyrir mig.
Reynir.
Það að búa úti á landi þar sem ekki eru verslanir eða aðrir fagmenn á hverju strá fögnum öllum þeim sem leggjja á sig til að þjóna okkur. Ég er mjög ánægð með póstsendingarnar (e-mail) sem ég hef fengið frá ykkur og leiðbeiningarnar um þrifin á gleraugunum var náttúrulega bara mjög sniðugt. Bíð eftir fleiri fréttum.
Ásdís Ólafsdóttir, Tálknafirði.
Eg hef góða reynslu af starfsfólkinu í Sjónarhól og ætla bara að vona að eg fynni Sjónarhól ef eg týni gleraugunum.
Kristján S. Bjarnason
Ég er mjög ánægður með þjónustu og tölvupóst, á örugglega eftir að koma aftur
Kveðja Hreinn
Við fjölskyldan höfum fengið frábæra þjónustu í gegnum árin. Gott viðmót og gott verð skiptir máli þegar margir í fjölskyldunni nota gleraugu.
Keith Reed
Ég verslaði hjá Sjónarhól mín önnur gleraugu fyrir um 2 mánuðum síðan, þjónustu lundin, hraðinn á afgreiðslu og gæðin á gleraugunum voru framúrskarandi. Ég kom um hádegi á föstudegi að borga gleraugun mín og kl 13:30 sama dag fékk ég SMS um að ég mætti sækja þau. Frábært að fá þetta svona fljótt og skiptir miklu máli í vali mínu á hvar ég versla næstu gleraugu. Frábær þjónusta og toppgæði. Takk takk.
Vilhjálmur Árni Sveinsson
Ég var með tvískipt gler áður og munur á þeim og þessum nýju ANATEO er hvað allt rennur "smoothly" saman - þarf ekki að vera að leita af þessum punkti. Ég get meira að segja lesið með því að hreyfa bara augun ekki allt höfuðið.
Jane Skowronski
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll er nú á sínu 13. aldursári. Verslunin er stofnsett í þeim tilgangi að lækka gleraugnaverð á Íslandi. Við teljum þetta hafa tekist. Sjónarhóll er öðruvísi gleraugnaverslun. Til að byrja með var Sjónarhóll póstverslun þar sem gleraugu okkar voru öll smíðuð hjá viðurkenndu fyrirtæki í Englandi "Young Optical". Nú fer öll smíði fram á Íslandi. Við erum í samkeppni við okkur sjálf. Frá upphafi höfum við bryddað upp ýmsu, svo sem 2fyrir1, móttöku Afríku gleraugna, gefins umgjarða undir glerin og nú síðast listagalleríi í hluta verslunarinnar.
Hjá Sjónarhól bjóðum við gæðavöru á góðu verði. Stefnumið okkar er heiðarleiki í öllu sem við gerum. Við leggjum mikið upp úr þjónustunni, og vitum að þjónustan endar ekki við afhendingu gleraugnanna. Hér á síðunni má lesa umsagnir viðskiptavina okkar, en frá upphafi höfum við byggt á góðu orðspori og trausti þess að fólk segji frá.
Á Sjónarhól ættu allir að geta fundið gleraugu við sitt hæfi.
© Allur réttur áskilinn, Vefhönnun Gleraugnaverslunar Sjónarhóls