18 Karata gull umgjarðir, Lafont, Oliver Goldsmith, MINIMA, títan umgjarðir. Barna, unglinga og fullorðins gleraugu. EXTRA STÓRAR og pínulitlar.
Mjög mikið úrval
hnappar_nyjir
Forsíða     Fréttir    Gleraugu     Umgjarðir     Gler     Fylgihlutir     Gallerí     Stefnumið     Samfélagsþj.    Saga versl.     Hagnýtar uppl.     Um okkur
HEILDSÖLUVERÐ

Umgjarðir SJÓNARHÓLS - Sýnishorn !

Gleraugnaverslunin Sjónarhóll býður upp á gríðarmikið úrval umgjarða, frá framleiðendum víðsvegar að úr heiminum. Umgjarðir Sjónarhóls koma frá Frakklandi, Ítalíu, Hollandi, Þýskalandi, Japan og Hong Kong, svo eitthvað sé nefnt.
Búið er að setja upp myndir sem vonandi sýna fjölbreytileika þeirra umgjarða sem Sjónarhóll býður upp á. Þetta eru á engan hátt tæmandi upplýsingar, enda eru sýndar yfir 1000 umgjarðir í sýningasal verslunarinnar. Sem dæmi má nefna að allar umgjarðir fást í 2 til 6 litum, einnig er oft um nokkrar stærðir umgjarða að ræða. Einungis er tekin mynd af einum lit í einni stærð í hverri tegund. Ekki eru allar tegundir myndaðar. Myndirnar eru birtar í þeim tilgangi að gefa hugmynd um það sem við erum að gera. Njótið vel
Rétt er að geta þess að við leitumst við að eiga umgjarðir fyrir allan aldur bæði kyn, venjulegar og óvenjulegar umgjarðir. VERULEGA STÓRAR KARLMANNA umgjarðir, í stærðum 55 til 60+ , einnig pínulitlar, og allt þar á milli.

NÝJAR UMGJARÐIR !


ANIMAL

ANIMAL

ANIMAL

ANIMAL

FLOTTAR !

STERKAR !

NÝJAR !

Austin Reed

Fallegar umgjarðir, sem höfðar frekar til karlmanna á aldrinum frá ca.18 og upp. Austin Reed er hluti þeirra umgjarða sem við fáum frá Inspecs á Englandi.
Um Inspecs fyrirtækið, það var stofnað árið 1990 og hefur vaxið jafnt og þér frá þeim tíma. Um aldamótin síðustu stóð til að fjárfest í skrifstofu hæð í miðborg Lundúna þar sem fyrirtækið hafði aðsetur en var eigendum þá bennt á mögluleikann að söðla algerlega um og festa kaup á kastala eða herragarði sem var til sölu í nágreni við borgina Bath á suður Englandi. Þetta var gert. Umgjarðir sem koma frá Inspecs eru eftirfarandi: Austin Reed, CAT, Conran, Fcuk, French Connection, Mayhem og Speedo.
Allar umgjarðirnar eru mjög vandaðar í smíði, framleiddar í þeirra eigin verksmiðjum.

Verð Austin Reed umgjarðanna er frá 12 þús.

OLIVER GOLDSMITH hefur frá upphafi verið með okkur á Sjónarhól.

Hr. Oliver Goldsmith.

 Er 3. ættliður Goldsmith fjölskyldunnar, sem heldur uppi merkjum ættarinnar. Afi Olivers, Oliver Goldsmith hófhönnun og smiði umgjarða í Englandi árið 1926 og er álitinn vera elsti gleraugnatískuhönnuður á Englandi. Meðal frægra einstaklinga sem Oliver Goldsmith hefur hannað fyrir gegn um tíðina eru: Grace Kelly, Diana Prinsessa og Elton John. Hönnun Oliver Goldsmith umgjarðanna er nútímaleg en sígild, stundum látlaus en samt ögrandi, og alltaf glæsileg.

Gleraugnaverslunin Sjónarhóll kynnir Oliver Goldsmith umgjarðirnar með stolti.

Verð umgjarðanna er frá 8 þús.

Sjónarhóll býður MINIMA-titanium,"umgjarðalausu" Titan umgjarðirnar frá Fraklandi.

  MINIMA

 Umgjarðirnar eru hannaðar á þann hátt að erfitt er að brjóta glerin, en það hrjáir oft hönnun "umgjarðalausra" umgjarða. Stöðugleiki þeirra er einkar mikill. Umgjarðalausar umgjarðir hafa haft þann veikleika, að missa stöðugleika sinn með árunum, en MINIMA  umgjarðirnar eru lausar við þennan löst og standa stöðugar gegn um alla eðlilega notkun, eigendum sínum, MINIMA og Sjónarhól til sóma.  

Rétt er að geta þess að umgjarðir án glerja geta verið léttar en það sem skoða þarf er heildarþyngd gleraugnanna með glerjunum. Þegar umgjörð og gler er komið saman er fyrst hægt að ákvarða hvort gleraugun eru létt eða ekki. MINIMA eru léttar.

Framleiðandi MINIMA gefur 10 ára ábyrgð á umgjörð. Komi fram galli í málmhlutum umgjarðar á því tímabili er skipt um þann hluta umgjarðarinnar eða umgjörðina í heild. Ekki er tekin ábyrgð á lit umgjarðanna

Verð umgjarðanna er frá 37 þús.

  LAFONT PARIS

Lafont

Hefur frá upphafi einbeitt sér að einstakri hönnun vandaðra tískuumgjarða. Einnig hefur Lafont framleitt barnaumgjarðir um árabil.

 Philippe Lafont er þriðji ættliður Lafont fjölskyldunnar og Laurence Lafont eiginkona hans ásamtsyninum Thomas, standa á bak við hönnun Lafont umgjarðanna í dag. Afi Philippe hóf hönnun og framleiðslu Lafont ungjarðanna, í fremur litlu húsnæði, baka til við gleraugnaverslun sína, á Madeleine í miðborg Parísar, árið 1923. Í dag fjölgar verslunum Lafont um allan heim. Gleraugnaverslunin Sjónarhóll er eina gleraugnaverslunin á Íslandi sem Lafont einbeitir sér að, og þar færð þú allt það nýjasta sem Lafont hefur upp á að bjóða.

Í verslun Lafont á Madeleine er það regla fremur en undantekning að frægt fólk láti sjá sig og sem dæmi má nefna að þegar eigendur Gleraugnaverslunar Sjónarhóls litu þar við, nú nýverið, hafði ein af stórstjörnum kvikmyndanna verið þar stuttu áður og hafði þá fest kaup á 5 Lafont umgjörðum. Starfsfólk búðarinnar áætlar að slík heimsókn sé vikulegur viðburður.

Gleraugnaverslunin Sjónarhóll kynnir Lafont með stolti. Þær eru tvímælalaust með því besta sem í boði er á markaðinum í dag hvað varðar gæði, fjölbreytileika, litagleði, styrkleika útlit og verð.

Verð umgjarðanna er frá 12 þús.

Tuski

  Tsuki

Umgjarðir þessar eru úr gegnheilu 18 Karata gull og eru þær einkar glæsilegar og eigendum sínum til mikils sóma.

Verð umgjarðanna er frá 64 þús.

Tecno Flex

Tecno Flex umgjarðirnar eru mjög sveigjanlegar um nefstykki og arma og nýtast mjög vel í öll les og vinnugleraugu. Þetta eru ekki tísku umgjarðir en mjög látlausar og fallegar og til í mjög mörgum útfærslum. Þær eru hannaðar í Evrópu en settar saman í Japan. Barnaumgjarðir eru einnig framleiddar hjá Tecnoflex og má skoða myndir af þeim í barnagleraugunum hér fyrir neðan.

TECNO FRAME umgjarðirnar koma frá sama fyrirtæki og eru ekki eins sviegjanlegar. Verð þeirra er lægra en Tecno Flex umgjarðanna.

Verð Tecno Frame umgjarðanna er frá 9 þús. Verð Tecno Flex umgjarðanna er frá 16 þús.

X-EYES

Umgjarðirnar höfum við haft í nokkur ár. Þetta eru vandaðar fallegar plast og málm umgjarðir á mjög hagstæðu verði. X-EYES umgjarðirnar eru settar saman í Asíu.

Verð umgjarðanna er frá 6 þús.

 

Fyrir börnin

Barnaumgjarðir bjóðum við í miklu úrvali. Hátt í 100 umgjarðir í öllum stærðum og litum frá mörgum framleiðendum. Eftirgefanlegar, sterkar og fallegar.

Verð umgjarðanna er frá 2 þús.

 

Ýmsar umgarðir

Frá upphafi hefur Gleraugnaverslunin Sjónarhóll boðið mjög breiða línu umgarða þar sem tillit hefur verið tekið til þarfa fólks á öllum aldri. Stórar og litlar karl og kvenn umgarðir nýmóðins og gamaldags, venjulegar og óvenjulegar. Mikið úrval. Gæði í fyrirrúmi.

Verð umgjarðanna er frá 2 þús.

 

 

TIL BAKA

CAT

CAT er gleraugnalína Caterpillar framleiðslunnar sem líklega er þekktust fyrir framleiðslu stórra jarðvinnuvéla. Bílaumboðið Hekla sér um innflutning jarðvinnuvélanna, en við sjáum um gleraugnaumgjarðirnar. Þetta eru í öllu falli mjög sterkar umgjarðir en þó stílhreinar og fallegar.

Verð umgjarðanna er frá 13 þús.

CONRAN

Vision by Conran umgjarðirnar eru gleraugnalína Conran tískuhannaðarins. Formfastar áhveðnar og sterklegar umgjarðir.

Verð umgjarðanna er frá 22 þús.

FCUK

Fcuk er dótturfyrirtæki French Connection með umgjarða og fatalínu sem höfðar meira til yngra fólks. Frá Fcuk fáum við umgjarðir fyrir bæði konur og menn.

Nafnið er óvenjulegt en kemur af því að einhvern tíma var sent fax innan French Connection frá Englandi til BNA en gleymst hafði að setja hausinn á faxið. Eitthvað var verið að flýta sér og plássið fyrir hausinn lítið og var því hent á faxið styttingunni FC UK. Þetta fannst kananum góð stytting á fullu nafni French Connection og úr varð Fcuk.

Verð umgjarðanna er frá 14 þús.

French Connection

French Connection tísku-umgjarðirnar eru gleraugnalína samnefndrar fatalínu FC. Fallegar línur í umgjörðum og miklir litir.

Verð umgjarðanna er frá 18 þús.

Mayhem

Mayhem umgjarðir

Verð umgjarðanna er frá 11 þús.

Renoto Balestra / Gantinoni

Ítölsku umgjarðirnar frá Renato Balestra, eru stórar, áberandi, margar steini-lagðar og í alla staði glæsilegar. Hér eru á ferð umgjarðir sem eru oft á tíðum meira í ætt við skartgripi en gleraugu. Við buðum Renato Balestra fyrir um einu ári en höfum svo ekki náð í þær í nokkurn tíma vegna breytinga erlendis eða þar til nú. Það er okkur því sönn ánægja að geta boðið þær á ný enda fyrri sendingar löngu uppseldar.
Við bættum nú við umgjörðum frá Gattinoni, einnig frá Ítalíu þar sem þær tóna vel með Renato B. stórar, glæsilegar og eigendum til mikils sóma.

Verð Renato Balestra er frá 15 þús. og Gattinoni frá 18 þús.

Speedo

Speedo sport umgjarðir.

Verð Speedo er frá 14 þús.

Vefhýsing www.1984.is
Þínar skoðanir og hug-
myndir skipta okkur máli,
sendu okkur póst
Sjónarhóll, Reykjavíkurvegi 22, 220 Hafnarfirði, S. 565-5970, Fax 565-5971 sjonarholl@sjonarholl.is Opið alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00
© Allur réttur áskilinn, Vefhönnun Sjónarhóls