Hvernig er best að þrífa gleraugun sín ?

hnappar_nyjir
Forsíða     Fréttir    Gleraugu     Umgjarðir     Gler     Fylgihlutir     Gallerí     Stefnumið     Samfélagsþj.    Saga versl.     Hagnýtar uppl.     Um okkur
HEILDSÖLUVERÐ

 

Best er að skoða mynbandið í Internet Explorer !

Þrif á gleraugum !
Glerin eru í flestum tilfellum harðplast með glerhúð (rispuvörn) og glampavörn og eru því létt og sterk. Þó er hægt að eyðileggja þau eins og annað. Rispuvörnin kemur td. ekki í veg fyrir rispur ef þau eru þrifin með rykugum gleraugnaklút, peysunni, treyjunni, bindinu eða öðru sambærilegu, eða ef þau rekast í eitthvað hart. Rispuvörnin ver þau hinsvegar gegn fínum rispum við eðlileg þrif. Fyrir tíma rispuvarnar urðu plastglerin hvít og ógegnsæ af þrifunum einum saman.

Til að auka líftíma glerjanna skal þrífa þau með KÖLDU rennandi vatni, ekki volgu og alls ekki heitu.
Skola allt ryk. Strjúka létt yfir glerin með fingrunum á meðan skolað er.
Einn dropi af uppþvottalegi á fingurna og dreifða honum (ekki beint á glerin). Uppþvottalögur sé án handáburðar.
Strjúka létt yfir bæði glerin með fingrunum og skola síðan vel af glerjum. Þegar gler verða stöm viðkomu eru þau hrein.
Strjúka létt yfir glerin með hreinum gleraugnaklút, rétt til að þurka upp vatnið, eða slá af þeim eins og sýnt er í myndbandinu.
Ef þú hefur spurningar, sláðu þá á þráðinn í síma 565-5970. Kær kveðja Ólafur Einarsson, Gleraugnav. Sjónarhól

 

TIL BAKA

Þínar skoðanir og hug-
myndir skipta okkur máli,
sendu okkur póst
Vefhýsing www.1984.is
Sjónarhóll, Reykjavíkurvegi 22, 220 Hafnarfirði, S. 565-5970, Fax 565-5971 sjonarholl@sjonarholl.is Opið alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00
© Allur réttur áskilinn, Vefhönnun Sjónarhóls