Frá febrúar 1998 hefur Sjónarhóll verið í samstarfi við "Vision Aid Overseas" og tekið á móti notuðum gleraugum frá fólki hér á Íslandi. Þessi gleraugu eru send til Englands þar sem þau eru þrifin, mæld og merkt. Eftir þetta eru gleraugun send til Afríku þangað sem augnlæknar / sjónfræðingar fara reglulega, oftast á sinn kostnað, mæla sjón fólksins og finna síðan gleraugu sem passa viðkomandi best. Þrif og mæling er unnin af föngum í Englandi sem afplána hluta af sinni refsingu í þjónustu við samfélagið. Við tökum við öllum gleraugum, en æskilegast er að umgjörðin sé þokkalega heil og glerin ekki mikið rispuð. Lesgleraugu, göngugleraugu, barnagleraugu, skipt gleraugu og að lokum sólgleraugu með og án styrks. Mjög sterk gleraugu (plús eða mínus) eru sérstaklega vel þegin !
Best er að skoða myndbandið í Internet Explorer !