Ágrip af sögu SJÓNARHÓLS í Hafnarfirði.

hnappar_nyjir
Forsíða     Fréttir    Gleraugu     Umgjarðir     Gler     Fylgihlutir     Gallerí     Stefnumið     Samfélagsþj.    Saga versl.     Hagnýtar uppl.     Um okkur
HEILDSÖLUVERÐ

Saga SJÓNARHÓLS hússins og Gleraugnaverslunar Sjónarhóls sem þar er starfrækt

Húsið SJÓNARHÓLL er reist í miðju seinna stríði (1943) af Birni Eiríkssyni og fjölskyldu. Áður stóð timburhús á sama stað sem einnig bar nafnið Sjónarhóll en það var flutt, og stendur nú við Grænukinn nr. 27 hér í Hafnarfirði.

Meira kemur um sögu hússins og fólksins sem þar bjó og starfaði.

Gleraugnaverslunin Sjónarhóll stofnuð 15. ágúst 1996

Strax eru fest kaup á fyrstu hæð í gamal kunnu húsi Björns Eiríkssonar leigubílstjóra, Sjónarhól í Hafnarfirði. Fyrsta hæðin og í raun allt sem við kom þessu húsi var í niðurníðslu. Þar sem tilstóð að opna gleraugnaverslun var ekki flókið að finna á hana nafn í þessum nýju húsakynnum.

2. september 1996 er húsnæðið afhent stofnendum Gleraugnaverslunarinnar og er þá lagt á ráðin um hverju skal halda og hvað skal fara. Terroso gólfið er mikill höfuðverkur þar sem leiðbeiningar dúkalagningamanna eru allar á einn veg, að ekki sé hægt að bjarga þessu gamla gólfi. Málað hefur verið yfir það að hluta og er því úr vöndu að ráða, en loks er sammælst um að leggjast á hnén og bjarga því sem bjargað verður. Vissulega er laut í gólfinu framan við gamla afgreiðsluborðið hans Boða í Boðabúð, en hún gerir gólfið bara skemmtilegra.

Verslunargluggarnir reynast mjög fúnir og er því ráðist í að skipta um þá, klæða verslun að innan og smíða innréttingar.

Gleraugnaverslunin er opnuð 17. september 1996 (aðeins 15 dögum eftir afhendingu)  í  25 m2 húsnæði. Hún býður gleraugu á lægra verði. Þannig verður hún frumkvöðull að lækkun gleraugnaverðs á Íslandi.

Til að halda verðlagi í lágmarki er öll auglýsingagerð í höndum starfsmanna, einnig er leitast við að halda opnunartímum verslunar innan skynsamlegra marka. Þetta tekst.

Fljótlega verður slagorð verslunar: "ÞAR SEM GÆÐAGLERAUGU KOSTA MINNA" til, og stendur hún fyllilega undir því slagorði allt fram á þennan dag. Einnig er haft á orði við okkur að þetta sé LÍKLEGA HLÝLEGASTA OG ÓDÝRASTA GLERAUGNAVERSLUNIN NORÐAN ALPAFJALLANNA, sem við gerum einnig að slagorði okkar og notum enn þann dag í dag. Samkvæmt okkar vitund er verslunin mjög hlýleg og stefanan er að hún sé ódýr.

Í mars 1998 er Gleraugnaverslunin Sjónarhóll frumkvöðull að 2 fyrir 1 tilboði á gleraugum á Íslandi.

Bílastæði eru frá upphafi vandamál og þá sérstaklega á veturna.

Snemma árs 1998 er helmingur innkeyrslunnar meðfram húsinu keyptur til að auka við bílasæðin.

Í september árið 1998 er útibú opnað í Glæsibæ þar sem augljóst er að mikið er um að Reykvíkingar sæki í Sjónarhól Hafnarfirði í gleraugnahugleiðingum.

Veturinn 1999 til 2000 er mjög snjóþungur og því er brugðið á það ráð að fjárfesta í snjóblásara á netinu og hann fluttur inn beint frá Bandaríkjunum.

Í október árið 2001 er útibúi Sjónarhóls Glæsibæ lokað þar sem væntingar sem gerðar hafa verið til þess standast ekki og virðist sem Reykvíkingar haldi áfram að sækja í Hafnarfjörðinn þrátt fyrir Glæsibæjarútibúið.

Síðla árs 2001 fer að bera á því að verkfæri hverfi og skili sér nokkrum dögum síðar, sérpöntuð gler hverfa en skila sér aftur öll nema ein. Það sést til konu í búðinni sem þó er ekki þar þegar betur er að gáð. Starfsfólk byrjar að kalla hana Bubbu eða Guðbjörgu og henni eru eignaðir þessar óútskýrðu atburðir. Helst er álitið að Bubba hafi sömu sjón og sá er sérpöntuðu glerin voru ætluð.

Í kjölfar lokunar Glæsibæjar 2001 er verslunin í Hafnarfirði stækkuð snemma árs 2002 um 100% úr 25m2 í 50 m2 og innréttingar úr Glæsibæ settar upp í stækkuðu húsnæði.

3. febrúar 2003 hefjast sjónmælingar á Sjónarhól. Keypt hafa verið tölvustýrð sjónmælingartæki sem gera sjónmælingu fljótlega og örugga. 

Í kjölfar stækkunar sprengir verslunin af sér þau 3 bílastæði sem hún hefur til umráða og því er í mars mánuði árið 2003 brugðið á það ráð að kaupa restina af innkeyrslunni. Í kaupunum fylgir íbúð á annari hæð Sjónarhóls, sem nauðslynlegt reynist að gera upp.

Strax í maí sama ár er innkeyrslan mokuð upp og klöppin, sem skilin er eftir þegar húsið er í byggingu í lok seinna stríðs (1943), brotin upp og fjarlægð. Hiti er settur í planið og malbikað yfir. Við þessar aðgerðir er komið bílastæði sem rúmar 5 bíla til viðbótar svo nú geta 8 bílar lagt við búðina. Stutt er frá bílastæði í búðina (10 til 20 metrar) og er nú mjög aðgengilegt fyrir aldraða og fatlaða sem og aðra.

Sumarið 2003 er notað til að gera upp íbúð á annarri hæð, skipta um alla glugga og gólfefni og mála allt hátt og lágt.

Haustið 2003 er skúr þakið lagað og nýtt járn sett á það.

Áramótin 2003-2004 eru notuð í að leggja flísar á græna herbergið (gömlu mjólkurbúðina) og leggur barnabarn Björns á Sjónarhól, Þórður í Flísabúðinni við Gullinbrú fram hugmynd um hvernig megi láta nýja og gamla gólfið falla saman. Þetta er gert og tekst mjög vel. Mynd birtist í Hús & Híbýli september blað 2004.

Sumarið 2004 er skúr málaður og hurðir lagaðar og skipt um alla glugga. Þess má geta að skúrinn og innkeyrslan eru búinn að vera lýti á Sjónarhól um árabil ómálaður með sínar hangandi hurðir og flagnandi múr og innkeyrslan með sína mölbrotnu steypu.

Þann 3. september 2005 var Reykjavíkurveginum lokað vegna vegaframkvæmda við Arnarhraunið. Þetta hafði auðvitað í för með sér að umferð í og fram hjá búðinni var í minna lagi en alla jafnan, og tók starfsfólk Sjónarhóls því það til ráða að lífga aðeins upp á búðina (svona vægt til orða tekið). Búðin er í rauninni tekin algjörlega í gegn, allir fletir, að gólfi undanskildu, annað hvort málaðir eða veggfóðraðir. Listum er skellt á gólf og gluggarnar endurskipulagðir. Ljósum í gluggum og við spegla er skipt út og nýjum og betri ljósum komið fyrir í staðinn. Punkturinn yfir i-ið voru svo filmurnar sem settar voru í glugga og hurðir, sem fríska svo um munar upp á yfirbragð búðarinnar utan frá séð. Þegar Reykjavíkurvegurinn er svo opnaður aftur upp úr miðjum nóvember er starfsfólk Gleraugnaverslunar Sjónarhóls tilbúið að taka við viðskiptavinum í nýrri og endurbættri verslun.

TIL BAKA

 

 

Vefhýsing www.1984.is
Þínar skoðanir og hug-
myndir skipta okkur máli,
sendu okkur póst
Sjónarhóll, Reykjavíkurvegi 22, 220 Hafnarfirði, S. 565-5970, Fax 565-5971 sjonarholl@sjonarholl.is Opið alla virka daga frá kl. 10:00 - 18:00
© Allur réttur áskilinn, Vefhönnun Sjónarhóls