Gleraugnaverslunin Sjónarhóll býður gleraugu í gríðarmiklu úrvali. Sjónarhóll er ein stærsta gleraugnaverslun landsins og hefur til sýnis í verslun sinni yfir 1000 umgjarðir í rúmlega 50 fermetra sýningarsvæði.
Við bjóðum göngugleraugu, lesgleraugu, barnagleraugu og skipt gleraugu í miklu úrvali. Gleraugun hjá okkur eru ódýr og er það markmið okkar að halda verði niðri og bjóða "ódýr gæðagleraugu". Verðið á Sjónarhól er í lágmarki enda sjáum við það glöggt þegar skoðað er verð fyrir og eftir hrun. Verðið í dag endurspeglar ekki á neinn hátt þær breytingar sem orðið hafa í samfélaginu ... við erum ánægð með það.
Samsettning fer fram hér heima og er samsettningartíminn á einföld gleraugu að jafnaði einn til tveir dagar. Skipt gleraugu eru að jafnaði afgreidd á sjö til tólf dögum. Ef glerin eru flóknari tekur afgreiðslan lengri tíma.
Gleraugnaverslunin Sjónarhóll hefur meðal annars umboð fyrir umgjörðum frá FCUK, French Connection, Speedo, Austin Reed, Vision by Conran, Nicole Farhi, CAT, Minima, og Oliver Goldsmith. Glerin okkar eru að mestu leyti frá glerjaframleiðandanum BBGR í Frakklandi.