NEVA Secret samanburður. Í upphafi ársins 2006 setti BBGR á markaðinn nýja glampavörn sem gefið var nafnið NEVA. Þessi glampavörn er slitsterkari og tærari en fyrri glampavarnir. Nú í ágúst og september 2007 komu tvær viðbætur við NEVA glampavrönina. Um er að ræða annarsvegar NEVA Secret og hinsvegar NEVA+. Sjá má hér til hliðar muninn á óglampavörðu gleri, glampavörðu gleri og NEVA Secret. Eins og glögglega má sjá þá er glampi nánast enginn á NEVA Secret og fá augun að njóta sín. NEVA+ er örlítið sýnilegri en NEVA Secret en hefur sérstaka "anti-static" rykfría húð sem heldur glerjunum hreinum mun lengur en með því minkar slit vegna þrifa.
PdM meðferðin kom með ANATEO ® glerjunum í upphafi árs 2007. Hún hámarkar sjónsvið hvers og eins með því að taka tillit til afstöðu glerja til augna. Mæld er dýpt augna, fjarlægð umgjarðar frá augum og heildarsveigja umgjarar en með þessu móti er tryggt að notandi fær fulla nýtingu af glerjunum. Þessi meðferð er sumstaðar kölluð 3D eða þrívíð. PdM er hluti þess sem kom ANATEO ® gerjunum í úrslit á Silmo í október 2007. Eins og fram kemur hér að ofan eru 99% notenda ánægðir með PdM meðferðina.
Gler - Plastgler
Gleraugu Gleraugnaverslunar Sjónarhólls eru að stærstum hluta afgreidd með plastglerjum. Plastið er aðallega tekið fram yfir glerið vegna léttleika þess. Plast vegur um 20 - 30% af þunga glers. Þegar gler er valið fram yfir plast er það vegna hörkunnar. Nú býður Sjónarhóll plastgler með hörkustuðulinn 4 af 10 (þ.e. plastgler með 40% af hörku demants). Sjónarhóll býður aðeins gler í hæsta gæðaflokki. Glerjaframleiðendur sem Sjónarhóll stendur í viðskiptum við BBGR í Frakklandi. Á Sjónarhól er ekki rukkað aukalega fyrir sjónskekkju upp að styrkleika 2.00.
Afspeglun
Um 90 til 95% af öllum glerjum sem Sjónarhóll afgreiðir eru plastgler. Þar sem glampavörnin verður æ vinsælli ætlum við að greina aðeins frá henni. Glampavörn í plastglerjum Sjónarhóls er átta laga afspeglun á báðum hliðum sem gerir það að verkum að allt utan að komandi ljós fer í gegn um glerin frá báðum hliðum án teljandi ljósbrots. Þetta veldur því að við myndatökur sjást augun í gegn um glerið, en ekki eingöngu hvít glerin af leifturljósi myndavélarinnar. Einnig speglast ljós eða gluggar ekki að neinu marki í glerjunum vegna glampavarnarinnar á innra byrði glerjanna. Glampavörnin dregur úr þessum speglunum eða ljósbrotum um u.þ.b. 80 til 90%.
Glampavörn hefur verið sett á linsur myndavéla og sjónauka um árabil í þeim tilgangi að skýra myndina og losna við endurkast (glampa) frá yfirborði glerjanna. Ef þetta væri ekki gert væru þessi verkfæri okkur ónothæf.
Glampavörn virkar þannig að yfirborð rispuvarinna glerjanna, veldur ljósbroti vegna þess hve óslétt það er, er baðað (eimað) í lausnum (átta mismunandi lausnir) sem síðan harðna (eru bakaðar) á glerjunum og mynda slétta húð eða lag yfir þau. Vegna þess hve sléttar þær eru eftir þessa meðferð minnka þær ljósbrotið niður í uþb. 10 til 20%.Þessar átta húðanir innihalda glampavörn, móðuvörn og rispuvörn, og verja glerin gegn utan að komandi áreiti.
Um áramótin 2005/06 kom á markaðinn ný og betri glampavörn "NEVA" en hennar helstu kostir eru hve sleip hún er, fita og óhreinindi setjast síður á glerið og því mun auðveldara að halda því hreinu. Harka platglersins er einnig meiri gagnvart rispum með þessari nýju glampavörn.