Verslunin er ört vaxandi og mikið af nýjungum. Hérna munum við setja inn það sem er helst á döfinni á hverjum tíma, njótið vel.
September 2010 ANATEO MIO® HLÝTUR SILMO-BIKARINN!

Saga BBGR er saga árangurs. BBGR er þriðji stæðsti glerjaframleiðandi í Evrópu en þó trúlega einn sá besti.
Enn og aftur hlýtur BBGR Silmo bikarinn, í þetta skiptið fyrir næstu útgáfu af ANATEO®, sem ber heitið ANATEO MIO® en dómnefnd valdi ANATEO MIO® sem það besta af því besta.
Við á Sjónarhól kynnum því ANATEO MIO® sem:
"EKKI BARA ÞAÐ BESTA SEM VIÐ GETUM BOÐIÐ,
............................................. HELDUR ÞAÐ BESTA SEM Í BOÐI ER!"
September 2010 GLERAUGU OG GISTING, AUKIN ÞJÓNUSTA VIÐ LANDSBYGGÐINA!

Aukin þjónusta við landsbyggðina. Ef þú átt heima utan höfðuborgarsvæðisins þá stendur þér til boða frí gisting þegar þú kaupir gleraugu hjá okkur. Ekkert lágmarksgjald. Þú kemur með rúmfatnað með þér, gengur vel og þrifalega um og býrð í þessu "3 stjörnu hóteli".
Líttu á GLERAUGU&GISTING fyrir nánari upplýsingar. Einnig er hægt að skoða myndband á YouTube
September 2009 HEIMASMÍÐUÐ TÍTAN-SUÐU-VÉL!

Nú í sumar 2009 hófst vinna við hönnun og smíði títansuðuvélar sem við erum mjög stolt af. Við vildum hjálpa fólki með títangleraugun sín því það getur verið dýrt að brjóta títan umgjarðir og þurfa á sjá á eftir dýrum glerjum og umgjörðum, sér í lagi þegar mikið er eftir af glerjunum.
Þetta er liður í að halda þjónustustigi Sjónarhóls háu. Nú í september byrjuðum við svo að sjóða fyrstu gleraugun og það hefur allt frá upphafi gengið vonum framar. Gróflega tekst að gera við 70 - 80% umgjarða.
Líttu við á YouTube fyrir nánari upplýsingar á myndbandi.
Október-2009 "NEVA MAX" GLAMPAVÖRNI HLÝTUR SILMO-BIKARINN!

BBGR hlýtur hinn eftirsótta Silmo-bikar fyrir glampavörn sína NEVA MAX en hún býr yfir kostum fyrri glampavarna þar sem bestu kostir NEVA, NEVA+ og NEVA SECRET hefur verið dregið saman í þessa nýju glampavörn NEVA MAX®
NEVA MAX® býður okkur meiri hörku, rykfrýðindi, er nánast ósýnileg vegna þess hve tær hún er og síðan er rósin í hnappagatið 80% harðari rispuvörn en fyrirrennari hennar NEVA+.
NEVA+ glampavörnin er samt nokkuð mörgum þrepum ofar en átta laga Diam's grunnglampavörnin frá 1995.
28-apr-08 ÞANN 18. MARS 2008 VANN ANATEO® MARGSKIPTA GLERIÐ FRÁ BBGR GULL BRÚNNA !

Eftir árangursríka komu inn á glerjamarkaðinn í janúar 2007 og mikla velgengni allar götur síðan hljóta Anateo® glerin nú "Pont d'Or" verðlaunin hjá "Inform'Otique" í hönnunarsamanburði. Í fyrsta skipti ræðst BBGR í hönnun margskiptar glerja sem taka tillit til allra þátta augnanna, þe. lögun, dýptar, augnkúrfunnar, snúningsáss augans, og fjarlægðar milli augna og glerja. Allar mælingar eru gerðar með tilliti til umgjarðar sem valin hefur verið.
Byltingin í hönnun ANATEO® nú felst í því hvernig glerin varpa myndinni inn á augnbotninn en þar er sköpuð stigvaxandi mynd í samræmi við þarfir og með tilliti til hvers einstaklings fyrir sig.
Valið fer fram á eftirfarandi hátt, rúmlega 700 neytendur bera saman ný gler frá öllum framleiðendum og gefa þeim svo einkun. Í þessu tilviki fékk ANATEO® um 700 atkvæði sem besta glerið.
BBGR hefur margoft unnið til viðurkennninga og verðlauna fyrir glerja hönnun sína.
25-jan-08 BEINTENGING VIÐ GLERJAFRAMLEIÐANDANN, BBGR FRAKKLANDI !
Síðast liðið haust, nánar tiltekið í október hófst undirbúingur að beintengingu Sjónarhóls við framleiðslukerfi BBGR í Frakklandi. Með þessari beintengingu er það tryggt að allar pantanir sérsmíðaðra glerja eru komnar inn í framleiðslu línu BBGR skömmu eftir pöntun glerjanna í verslun okkar. Samhæfing hugbúnaðar fór fram fyrir jólin og nú í janúar höfum við lagt lokahönd á ferlið þannig að í dag eru sérpantanir sendar beint inn í framleiðslukerfi verksmiðjunnar rafrænt. Ávinningur er verulegur þar sem glerin koma mun fljótar til baka frá verksmiðju.
07-jan-08 GALLERÍ
Unnur Erna Ólafsdóttir sýnir í galleríi Sjónarhóls næstu 3 vikurnar. Unnur stundaði listnám við Fjölbrautaskóla Garðabæjar á árunum 2000-2004.
Einnig stundaði hún listnám á ýmsum sviðum í Brigham Young Háskóla í Bandaríkjunum frá 2005 til 2007 og hefur þar að auki farið á ýmis námskeið.
Hún stefnir á nám í sálfræði við Háskóla Íslands haustið 2008 með listasálfræði sem lokamark
01-jan-08 GLEÐILEGT NÝTT ÁR !
Starfsfólk Gleraugnaverslunar Sjónarhóls óskar landsmönnum gleðilegs nýs árs og þakkar fyrir það gamla. Margir spennandi hlutir eru að gerast og er það okkur sönn ánægja að vera í fararbroddi með nýjungar í vörum verði og gæðum. Á næstu vikum er margt sem við munum upplýsa um í gegn um fréttabréf okkar.
12-des-07 NÝJU UMGJARÐIRNAR KOMNAR, SÍÐASTA STÓRA PÖNTUNIN FRÁ SILMO PARIS Í HILLUR
Þá er síðasta stóra umgjarðapöntunin frá Silmo komin upp í hillur. Við tókum inn verulegt magn af nýjum umgjörðum frá Inspecs. Þetta eru umgjarðir í merkjunum: Vison by Conran, Austin Reed, French Connection, Fcuk, Speedo og að auki bættum við merkjunum CAT og Mayhem. Sjá nánar hér.
19-nóv-07 GALLERÍ
Bryndís Svavarsdóttir er nú með sýningu í galleríi Sjónarhóls. Bryndís er systir Eddu sem sýndi hjá okkur í nóvember. Mjög fallergar myndir og greinilegt að listagenin ganga í ættum. Þetta er sýning sem að mínu viti er vel þess virði að kíkja á. Verð myndanna er frá 15 til 50 þús.
14-nóv-07 NÝJAR UMGJARÐIR, RENATO BALESTRA OG GATTINONI FRÁ SILMO 2007 KOMNAR Í HÚS

Ítölsku umgjarðirnar frá Renato Balestra, eru komnar í hús, stórar, áberandi, margar steini-lagðar og í alla staði glæsilegar. Hér eru á ferð umgjarðir sem eru oft á tíðum meira í ætt við skartgripi en gleraugu. Við buðum Renato Balestra fyrir um einu ári en höfum svo ekki náð í þær í nokkurn tíma vegna breytinga erlendis eða þar til nú. Það er okkur því sönn ánægja að geta boðið þær á ný enda fyrri sendingar löngu uppseldar.
Við bættum nú við umgjörðum frá Gattinoni, einnig frá Ítalíu þar sem þær tóna vel með Renato B. stórar, glæsilegar og eigendum til mikils sóma. Verð Renato Balestra er frá 15 þús. og Gattinoni frá 18 þús.
07-nóv-07 NÝJAR UMGJARÐIR, MINIMA UMGJARÐAPÖNTUNIN FRÁ SILMO 2007 KOMIN

Þá eru verðlaunaumgjarðirnar frá Silmo komnar. Barnaumgjarðirnar frá MINIMA fengu gullið á Gleraugnasýningunni "Silmo" í París í Október síðastliðnum sem: "Það besta af því nýjasta fyrir börnin". Við tókum inn mikið magn þessara umgarða og erum að setja saman eina slíka til sýnis. Svipaðar umgarðir eru einnig framleiddar fyrir konur á öllum aldri og er hér til hliðar dæmi um slíka umgjörð.
Einnig tókum við smellu arma og nefstykki til að breyta algerlega útliti MINIMA umgjarðanna. Smellurnar passa einnig á nokkrar eldri umgjarðir MINIMA, settið kostar 4.190,-
05-nóv-07 GALLERÍ
Edda Svavarsdóttir sýnir nú í galleríi Sjónarhóls. Myndir Eddu eru óræðar landslags og náttúrumyndir. Á sýningunni eru olíumálverk og eru djúpir tónar ráðandi. Sýningin er mjög falleg og vert að skoða.
31-okt-07 NÝJAR UMGJARÐIR, EXTRA STÓRAR KARLMANNA-UMGJARÐIR STÆRÐIR 55 TIL 60+
Sjónarhóll hefur alla tíð leitast við að hafa mjög breiða línu umgjarða. Þar sem verslunin er mjög stór hefur þetta gengið ágætlega. Nú í vikunni vorum við að taka upp MJÖG STÓRAR karlmanna umgjarðir. Þetta eru umgjarðir í glerjastærðunum 55 til rúmlega 60.
30-okt-07 NÝJAR UMGJARÐIR, NÝJU "FRENCH CONNECTION UMGJARÐIRNAR" KOMNAR UPP Í HILLUR
Vorum að setja mikið magn nýju "French Connection" upp í hillur. Þar í eru helst umgjarðir fyrir konur á öllum aldri frá tvítugu og upp.
26-okt-07 SILMO GLERAUGNASÝNINGIN Í PARÍS 2007
Jæja, þá er komin niðustaða í valinu um "Bestu" margskiptu glerin á markaðinum.
Bikarinn fór til Essilor, móðurfélags BBGR sem framleiðir ANATEO. Okkur var sagt að í lokin hefði valið staðið milli ANATEO frá BBGR og PHYSIO frá móðurfélaginu.
Þessi tvö fyrirtæki þróa sína vöru að mestu leiti saman, enda nátengd. Við erum stolt af árangri okkar manna og tilnefningu ANATEO glerjanna og höldum áfram að bjóða þessa gæðavöru með miklu stolti.

15-okt-07 GALLERÍ
Sólrún Guðjónsdóttir sýnir nú í galleríi Sjónarhóls. Myndir Sólrúnar eru allar af stúlkum á suðrænni strönd, fallegir kjólar og flaxandi hár. Mjög falleg sýning og vert að skoða.
10-okt-07 GLAMPAVÖRN
BBGR hefur sett á markaðinn nýja viðbót við hina vinsælu NEVA glampavörn. Nýja glampavörnin heitir "NEVA Secret" og eins og nafnið gefur til kynna er hún sögð litlaus og ósýnileg. Við erum enn ekki búin að fá sýnishorn en búið er að panta fyrstu glerin með þessari glampavörn og verður sepnnandi að sjá hana. Þessar fyrstu pantanir ættu að koma til okkar í næstu viku.
8-okt-07 SILMO PARIS
Á alþjóðlegur gleraugnasýningunni: Silmo sem fram fer í París í lok mánaðarins kemur loks niðurstaða hvað ANATEO glerin varðar en þau eru að mörgum talin einna sigurstranglegust af öllu þeim glerjum sem komið hafa á markaðinn síðastliðja 12 mánuði. Við erum mjög vongóð.
8-okt-07 NÝR VEFUR Í LOFTIÐ
Nýr vefur Sjónarhóls fer í loftið. Vinna við hann hefur staðið í nokkra daga.